
Við sem stöndum að Kolkuós ræktuninni erum Sigurmon Marvin Hreinsson og Þuríður Elín Geirsdóttir.
Markmið okkar er að rækta úrvals vinnu- og veiðihunda af Labrador Retriever kyni þar sem heilbrigði, vinnueðli og gott geðslag eru höfð í fyrirrúmi. Stofninn að ræktuninni kemur frá heimalandi Labrador hundanna, Bretlandi. Við höfum flutt inn hunda frá þekktum ræktendum í Englandi og á Írlandi.
Allir hundar sem við höfum flutt inn eru afkomendur þekktra veiðihunda í Bretlandi og þau ræktunarnöfn sem koma fyrir í ættarskrám hunda okkar eru m.a.: Drakeshead, Tasco, Bringwood, Dargdaffin, Ulstare, Waxham ofl.